Myndband úr Héðinsfjarðargöngum
sksiglo.is | Almennt | 29.08.2011 | 09:20 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 468 | Athugasemdir ( )
Þeir sem ekki hafa farið í gegnum Héðinsfjarðargöngin geta
upplifað það í myndbandi sem hér fylgir. Þar er ekið á 160-180 km
hraða í gegnum göngin, eða þannig. Keyrt er í gegnum
Héðinsfjarðargöng, frá Siglufirði til Ólafsfjarðar, með upptökuvél
og er myndbandið sýnt á 2.5x hraða.
Þetta skemmtilega myndband tók Jón Steinar Ragnarsson kvikmyndagerðarmaður á Canon Powershot A490 myndavél og setti út á netið.
Þetta skemmtilega myndband tók Jón Steinar Ragnarsson kvikmyndagerðarmaður á Canon Powershot A490 myndavél og setti út á netið.
Héðinsfjarðargöng eru tvenn jarðgöng á milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar með viðkomu í eyðifirðinum Héðinsfirði. Göngin eru 3,9 km (Siglufjörður-Héðinsfjörður) og 7,1 km löng (Héðinsfjörður-Ólafsfjörður). Vegalengdin milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar er í heild 15 km um göngin. Héðinsfjarðargöngin voru opnuð 2. október 2010.
http://www.youtube.com/watch?v=FB1HPpq3-h8&feature=player_embedded
Einnig hér hjá www.timinn.is http://timinn.is/forsida/hedinsfjardargong-11-08-28.asp
Timinn.is
Athugasemdir