Heiðursviðurkenningar til upphafsmanna Síldarævintýrisins
Fyrr í sumar, nánar til tekið á 20. Síldarævintýrinu sem haldið var í sumar fór fram afhending heiðursviðurkenninga til upphafsmanna hátíðarinnar og annarra þeirra sem staðið hafa í ströngu öll þessi ár.
Þetta var vel til fundið og ætti að verða hvatning til þeirra sem koma að hátíðum framtíðarinnar.
Anita Elefsen og Örlygur Kristfinnsson afhentu þessu heiðursfólki innrammaðar vatnslitamynd eftir Sigurjón Jóhannsson í viðurkenningarskyni og var eftirfarandi texti fluttur af því tilefni:
Við höldum Síldarævintýrið í 20. sinn!
Þetta byrjaði allt snemma í júlí árið 1991 – hér uppi á skrifstofu Siglufjarðarkaupstaðar sátu þau Björn Valdimarsson þáverandi bæjarstjóri, Brynhildur Baldursdóttir skrifstofustúlka og Baldvin Valtýsson skrifstofustjóri – þarna sátu þau yfir kaffibollum og spjölluðu um gamla daga og hið einstæða mannlíf sem var hér á sumrin í höfuðborg síldarinnar, og þar kom tali þeirra að það væri nú ekki úr vegi að reyna að endurvekja þessa stemningu – efna til útihátíðar um verslunarmannahelgina og strax í spjalli þeirra var nafnið komið: Síldarævintýrið
Síðan hófst undirbúningurinn af krafti og fyrsta Síldarævintýrið var haldið fjórum vikum síðar með pompi og prakt, ein fyrsta bæjarhátíðin sem haldin var með þessum hætti á Íslandi og síðan eru þær orðnar margar og víða haldnar í flestum bæjum og þorpum Íslands.
Og ætli velgengni við uppbyggingu Síldarminjasafnsins megi ekki rekja að hluta til þessarar glæsilegu hátíðar okkar?
Og nú skulum við klappa fyrir því að Síldarævintýrið kenndi svo mörgum öðrum hvernig væri hægt að halda hátíð í tengslum við sögu og menningu staðanna.
Björn Valdimarsson var bæjarstjóri á fyrstu árum Síldarævintýrisins og stóð í fylkingarbrjósti þeirra sem unnu að hátíðinni.
Björn Valdimarsson – við viljum færa þér svolítinn virðingarvott fyrir framtak þitt til hátíðarinnar.
Þessi hátíð hefði aldrei verið haldin öðruvísi en með þátttöku síldarfólksins, þar hafa þær staðið á planinu og hér á sviðinu frá upphafi Birna Björnsdóttir, hún Bidda – frægasta síldarstúlka í heimi. Laufey Elefsen og Svanhildur Björnsdóttir. Og fyrir að standa vaktina svo dyggilega fyrir okkur í þessi tuttugu ár viljum við færa ykkur litla gjöf.
Eins og klettur í hafinu hefur hann Ómar Hauksson staðið, hinn virðulegi og stóri síldarspekúlant sem margir hafa talið að væri Óskar Halldórsson endurborinn. Ómar Hauksson – gjörðu svo vel.
Hvernig hefði Síldarævintýrið orðið ef Sturlaugs Kristjánssonar hefði ekki notið við? Allan tímann – boðinn og búinn með harmonikkuna eða önnur hljóðfæri til að laða fram hina réttu stemningu. Og það setur að manni óhug að hugsa til þess að hann Stúlli er bara dauðlegur maður. Verður nokkurn tíma hægt að halda Síldarævintýrið án hans? Sturlaugur Kristjánsson hafðu ævinlega þökk fyrir.
Síðastur en alls ekki sá sísti – er Theodór Júlíusson, framkvæmdastjóri Síldarævintýrisins í fjöldamörg ár. Hann mótaði umgjörðina og stýrði öllu saman af einstæðum metnaði og krafti. Hann skóp fyrirmyndina glæsilegu sem margir horfðu til víðsvegar um land.
Í mörg ár voru Síldarævintýrið og Theodór eitt og það sama. Theodór Júlíusson – hér er lítið þakklæti fyrir ómetanlegt starf í þágu Siglufjarðar.
ÖKFrétt þessi birtist upphaflega á vefsíðunni sild.is




Athugasemdir