Heimsókn Síldarminjasafnsins á ferðaskrifstofur
www.sild.is | Almennt | 27.07.2009 | 08:39 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 613 | Athugasemdir ( )
Síldarminjasafnið stendur nú að skipulagningu næsta sumars en Aníta Elefsen safnvörður þar heimsótti Iceland Travel og Atlantik fyrir skömmu.
Tilgangur þessa var að kynna Siglufjörð og Síldarminjasafnið sem ákjósanlegan áningarstað skemmtiferðaskipa. Gestir að jafnaði um 2-3 skemmtiferðaskipa hafa frá árinu 2002 sótt Siglufjörð heim og má nú segja að Síldarminjasafnið hafi átt frumkvæðið að og stigið mikilvægt skref í að auka þessi viðskipti. Tvö skip hafa nú þegar boðað komu sína til Siglufjarðar á næsta ári.
Nánar má lesa um fréttina á heimasíðu Síldarminjasafnsins www.sild.is





Athugasemdir