Hornbrekka Ólafsfirði 30 ára

Hornbrekka Ólafsfirði 30 ára Hornbrekka í Ólafsfirði hélt upp á 30 ára afmæli fimmtudaginn 17 maí. Það var á vordögum 1982 sem Hornbrekka tók til starfa.

Fréttir

Hornbrekka Ólafsfirði 30 ára

Hornbrekka í Ólafsfirði hélt upp á 30 ára afmæli fimmtudaginn 17 maí. Það var á vordögum 1982 sem Hornbrekka tók til starfa. Í upphafi voru á heimilinu 8 hjúkrunarrými og 17 dvalarrými.

Gegnum tíðina hafa verið þónokkrar breytingar á hlutfalli hjúkrunar-og dvalarrýmia. Í dag eru á Hornbrekku 18 hjúkrunarrými, 11 dvalarrými í eins og tveggja manna herbergjum og 6 dagvistarrými. Starfsmenn eru nú 36. Á þessum tímamótum bárust Hornbrekku nokkrar góðar gjafir.

Í tilefni af afmæli Hornbrekku var opið hús fimmtudaginn 17. maí. Gestum boðið upp á söng frá Kór eldriborgara í Fjallabyggð, handavinna heimilisfólks skoðuð og húsnæði, síðan var boðið upp á veitingar.





Kór eldriborgara í Fjallabyggð, stjórnandi Sturlaugur Kristjánsson.











Handavinna heimilisfólks



Handavinnan skoðuð




Texti: Aðsendur
Myndir: GJS





Athugasemdir

21.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst