Hringstigi við Ráðhúsið
sksiglo.is | Almennt | 29.09.2010 | 17:16 | Bergþór Morthens | Lestrar 372 | Athugasemdir ( )
Búið er að koma fyrir tveimur neyðarútgöngum á austurhlið Ráðhússins og hringstiga.
Hringstiganum var komið fyrir á steyptum sökkli og festur við vegginn. Það voru starfsmenn Berg sem sáu um verkið.
Þessi framkvæmd var orðin löngu tímabær og hefur húsið verið á undanþágu í fjölda ára.
Þessi framkvæmd eykur öryggi þeirra sem vinna í Ráðhúsinu og sækja það heim til muna, enda ekki nema um eina útgönguleið að ræða ef eitthvað kæmi upp á.

Athugasemdir