Hvar fæst veiðileyfi?

Hvar fæst veiðileyfi? Þeir voru óhressir túristarnir þegar þeir flúðu tjaldsvæði Siglufjarðar votir í fæturna í morgun en þrátt fyrir að mesta aukning

Fréttir

Hvar fæst veiðileyfi?

Vatnsagi á tjaldsvæðinu
Vatnsagi á tjaldsvæðinu

Þeir voru óhressir túristarnir þegar þeir flúðu tjaldsvæði Siglufjarðar votir í fæturna í morgun en þrátt fyrir að mesta aukning ferðamanna á landinu hafi verið á Siglufirði frá opnun gangna hefur lítið verið hugað að bættu gistiplássi fyrir tjaldgesti. Þeir íslensku spurðu hvort veiðileyfi fylgdi gistiverðinu.

Flestir bæjarbúar þekkja orðið pollana á tjaldsvæði Siglufjarðar en í dag væri hægt að halda dorgveiðikeppni á þeim góða bletti. Veðurútlit er þó þokkalegt á næstu dögum og ekki útlit fyrir jafn mikla rigningu um helgina, í næstu viku þornar svæðið síðan aftur almennilega og verður að sjálfsögðu þurrt í allt sumar. Allt samkvæmt björtustu vonum.


Athugasemdir

03.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst