Í gærdag fékk Sigló.is nýja viðbót – Leigumiðlun Rauðku
Eins og sumum er kannski kunnugt um þá hefur Rauðka unnið að standsetningu leigumiðlunar fyrir húseigendur á Siglufirði. Leigumiðlunin hefur nú fengið flipann „Gisting“ á heimasíðu Sigló.is. Sigríður María Róbertsdóttir hefur farið fyrir þessu verkefni síðastliðnar vikur og mánuði.
Af hverju leigumiðlun?
Hugmynd leigumiðlunarinnar er að svara vaxandi þörf fyrir skammtímahúsnæði á svæðinu ásamt því að veita húsnæðiseigendum aukin tækifæri til að nýta eignir sínar. Einnig er hugmyndin að á þessum grundvelli verði hægt að bjóða húseigendum aukna þjónustu við eignir sínar. Leigumiðlun Rauðku er einn af mörgum liðum fyrirtækisins í að skapa grundvöll fyrir aukinni ferðamennsku í Siglufirði í framtíðinni og talin viðbót við það sem fyrir er í boði.
Er þetta skynsamleg lausn?
Í dag er eitthvað af húsum í skammtímaleigu í bænum en með leigumiðluninni skapar Rauðka sameiginlegan grundvöll, bæði fyrir þessa aðila sem og nýja, til að auglýsa hús sín. Auðveldar þetta því bæði húsnæðiseigendum að leigja út hús sín sem og ferðamönnum að finna sér hentugt húsnæði í Siglufirði.
Hvaða auknu þjónustu er um að ræða?
Rauðka hefur nú þegar samið við Lindu Gylfa um þrif og eftirlit með þeim íbúðum sem fara í gegnum leigumiðlunina og er það fyrsti liðurinn í aukinni þjónustu fyrir húseigendur. Rauðka hyggst í framtíðinni auðvelda húseigendum að leita eftir þeirri þjónustu sem þeim skortir með því að miðla upplýsingum um þjónustuaðila á svæðinu. Má þar nefna vöktunarþjónustu, garðvinnu, málningarvinnu, smíðavinnu og ýmsa aðra viðhaldsþjónustu sem húseigendum gæti vantað.
Sigló.is hvetur alla til að skoða nýja „Gisting“ flipann á síðunni og kynna sér frekar starfssemi leigumiðlunarinnar. Áhugasamir geta haft samband við Siggu eða Erlu Helgu í símanúmer Rauðku 467-1550.




Athugasemdir