Iðja dagvist

Iðja dagvist Fyrsta apríl í ár var formlega opnuð ný aðstaða fyrir Iðju dagvist að Aðalgötu 7 Siglufirði. Fréttamaður sksigló leit við hjá vistmönnum sem

Fréttir

Iðja dagvist

Iðja dagvist Aðalgötu 7 Siglufirði
Iðja dagvist Aðalgötu 7 Siglufirði
Fyrsta apríl í ár var formlega opnuð ný aðstaða fyrir Iðju dagvist að Aðalgötu 7 Siglufirði. Fréttamaður sksigló leit við hjá vistmönnum sem voru komnir í jólaskap og í óða önn að gera fallega muni fyrir jólin.

Húsnæðið var sérstaklega hannað og innréttað með þarfir starfseminnar í huga. Iðjan hefur verið starfandi allar götur frá árinu 1992 og er nú loksins búin að fá húsnæði sem tekur mið af starfseminni hvort heldur sem litið er til þjónustunnar eða aðgengis.

Starfsmenn iðjunnar eru Lilja Kristín Guðmundsdóttir, Þórey Guðjónsdóttir og Agnes Þór Björnsdóttir og hefur Lilja leitt starfsemina frá upphafi.

Með yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga um síðustu áramót ákváðu sveitarfélög byggðasamlagsins að halda áfram tíu ára farsælu samstarfi og gerðust  Bæjarhreppur og Dalvíkurbyggð jafnframt aðilar. Byggðasamlagið telur því nú tíu sveitarfélög.  Við þessar breytingar verður til nýtt þjónustusvæði Fjallabyggð og Dalvíkurbygg og mun Iðjan þjónusta fatlaða einstaklinga á því svæði.





Hrafnhildur Sverrisdóttir, Kristín Friðriksdóttir og Anna Kristinsdóttir



Þórey Guðjónsdóttir og Árni Heiðar Bjarnason að gera klárt fyrir hádegismat.

Texti og myndir: GJS


Athugasemdir

31.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst