Þjóðlag.is – Rödd þjóðarinnar

Þjóðlag.is – Rödd þjóðarinnar Halldór Gunnar Pálsson, Önfirðingur og kórstjóri Fjallabræðra er um þessar mundir að vinna að stóru verkefni sem

Fréttir

Þjóðlag.is – Rödd þjóðarinnar

Sungið í íþróttasalnum
Sungið í íþróttasalnum

Halldór Gunnar Pálsson, Önfirðingur og kórstjóri Fjallabræðra er um þessar mundir að vinna að stóru verkefni sem „vonandi mun bera mig hringinn í kringum landið,“ eins og hann hefur orðað sjálfur.

Hann var staddur í Grunnskóla Fjallabyggðar á Siglufirði í morgun og tók upp söng nemenda. Halldór Gunnar hefur að undanförnu verið að vinna lag fyrir Fjallabræður sem hefur hlotið nafnið Ísland. Lagið er stórt og mikið og eru margir sem koma að flutningi þess, þ.á.m Fjallabræður, hljómsveit Fjallabræðra, Unnur Birna Björnsdóttir og lúðrasveit Vestmannaeyja.

Halldór Gunnar samdi lagið en textann samdi Jökull Jörgensen. Einsöng í laginu syngur Unnur Birna Björnsdóttir sem einnig kom að því að semja lagið. „Eftir að lagið fór að taka á sig mynd kviknaði sú brjálaða hugmynd að leggja af stað í það verkefni að ná að fanga „Rödd Þjóðarinnar“ inn á lokakafla lagsins.Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef eru 10% þjóðarinnar skilgreiningin á rödd þjóðarinnar og hana ætla ég aðfanga,“ segir Halldór Gunnar.

En hvernig ætlar hann að fara að þessu?„Það er einfalt, ég ætla að keyra hringinn í kringum landið, stoppa á fyrirfram ákveðnum stöðum sem ég verð búinn aðhafa samband við og safna fólki saman til að láta það syngja. Og að ferðalaginu loknu verður öllum upptökum blandaðsaman til að mynda einn risastóran kór - rödd þjóðarinnar.“

Allir velkomnir: Halldór Gunnar mun hafa samband við kóra, leik,- og grunnskóla og aðra félagsstarfssemi í hverju byggðarlagi fyrir sig til að biðja fólk um að taka þátt en hann leitast einnig eftir öllum þeim sem vilja syngja með inn á lagið í hverju byggðarlagi. „Á hverjum stað sem ég heimsæki verður opið hús þar sem upptökur fara fram. Kafli lagsins er einfaldur og fljótlærður og mun það ekki taka langan tíma að kenna sönglínuna og taka hana upp,“ segir Halldór Gunnar.

Samstarfsaðilar: Pétur Kristján og Helgi Guðmundssynir hjá Trailerparkstudios munu fylgja verkefninu eftir við hvert fótmál og búa til sjónrænt listaverk við lagið þar sem land og þjóð fara með aðalhlutverk.

Markmiðið með þessu öllu saman er að reyna að sameina þjóðina í söng. Það er alveg klikkað ef að heil þjóð tekur sig saman í söng, það hlýtur bara að vera einsdæmi. Að verkefninu loknu verður lagið og myndbandið gert aðgengilegt öllum að kostnaðarlausu á vefsíðu verkefnisins sem verið er að vinna að. Hér koma myndir frá því að börnin sungu í skólahúsinu við Norðurgötu.


Allar nánari upplýsingar veitir Halldór Gunnar Pálsson

Tölvupóstur : halldorgunnar@thjodlag.is

Sími : 778-8998

Texti: http://thjodlag.is/

Myndir: GJS

Athugasemdir

23.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst