Jóakims hús við aðalgötu
sksiglo.is | Almennt | 23.09.2010 | 09:30 | Bergþór Morthens | Lestrar 694 | Athugasemdir ( )
Framkvæmdir standa nú yfir á Aðalgötu og stendur til að reisa gamalt hús á nýjum grunni.
Jóakimshús eins og það er kallað kemur til með að standa á nýjum grunni á lóð nr. 20 við Aðalgötu.
Húsið er að verða 100 ára og kemur það til með að sóma sér vel á þessari lóð þar sem svipað hús stóð áður.
Húsið verður gert upp með sem upprunalegustum hætti og er hugmyndin að gera gamaldags grindverk kringum húsið á lóðarmörkum.
Með þessari framkvæmd þéttist byggð við Aðalgötuna og það er kominn vísir að sjarmerandi þyrpingu gamalla húsa.

Athugasemdir