KKS Þorrablótið 2011

KKS Þorrablótið 2011 Hið árlega KKS Þorrablót verður haldið í Íþróttahúsinu á Siglufirði, laugardaginn 19. febrúar 2011. Þetta er í

Fréttir

KKS Þorrablótið 2011

Hið árlega KKS Þorrablót verður haldið í Íþróttahúsinu á Siglufirði, laugardaginn 19. febrúar 2011.
Þetta er í fjórða skiptið sem KKS þorrablót er haldið og hefur það heppnast mjög vel, maturinn einstaklega góður sem og skemmtiatriðin.

Veislustjóri í ár er hinn góðkunni S. Friðfinnur Hauksson, eða Finni Hauks eins og við þekkjum hann flest.

Félagar úr Fílapenslum koma og sprella, karlakórinn tekur nokkur lög, fjöldasöngur og margt fleira verður til skemmtunar. Ninni á Hring og félagar ætla svo að byrja ballið um kl. 23:00 með u.þ.b. hálftíma nikkuballi, svo kemur hljómsveitin Max og leikur til kl. 02:00, þannig að allir sem vilja ættu að geta dansað fram á rauða nótt.

Miðasala er hafin í Aðalbúðinni; og er miðaverði stillt í hófi, aðeins kr. 6.900.-,
einnig verður ódýrt á barnum.
Þeir sem ætla að vera saman við borð ættu að athuga að sætin eru númeruð.

Allar nánari upplýsingar eru á http://www.kks.is/

Athugasemdir

14.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst