KF, Knattspyrnufélag Fjallabyggðar auglýsir eftir þjálfurum fyrir yngri flokka félagsins
KF, Knattspyrnufélag Fjallabyggðar auglýsir eftir þjálfurum fyrir yngri flokka félagsins. Tímabilið sem um ræðir er 1.september 2013 til
31.ágúst 2014. Einnig er auglýst eftir yfirþjálfara allra yngri flokka félagsins.
KF er Fyrirmyndarfélag ÍSÍ og gerir miklar kröfur til yngri flokka þjálfara félagsins. Félagið er í mikilli stefnumótavinnu og
hægt að lesa sig til um starfsemi félagsins á heimasíðu þesskfbolti.is.
Það er skilyrði að þjálfari sé með þjálfaramenntun
frá KSÍ, reynslu af yngri flokka þjálfun og að þjálfari geti þjálfað milli klukkan 13:00 og 18:00 á virkum dögum.
Upplýsingar veitir Formaður barna-og unglingaráðs, Margrét í síma 822-8522.
Skriflega umsókn skal senda á barnaogunglingaradkf@kfbolti.is, umsóknafrestur rennur út 15.ágúst
2013.
Barna-og unglingaráð KF.
Athugasemdir