Kíkt á trefilinn
sksiglo.is | Almennt | 18.10.2010 | 06:30 | Bergþór Morthens | Lestrar 584 | Athugasemdir ( )
Fríða Gylfadóttir bauð upp á kaffi og kökur á vinnustofu sinni um helgina.
Með þessu vildi hún þakka öllum þeim sem komu að treflaverkefninu á einn eða annan hátt.
Það var gestkvæmt hjá Fríðu þennan dag og mætti fjöldi fólks til þess að kíkja á trefilinn og þiggja góðar veitingar.
Trefillinn heldur svo í ferðalag og verður til sýnis á Akureyri.

Veitingarnar voru ekki af verri endanum, ljúfengar kökur, kaffi, kleinur og bestu ástarpungar landsins.

Athugasemdir