Kirkjuskóli og aðventukvöld

Kirkjuskóli og aðventukvöld Á morgun, 2. desember, fyrsta sunnudag í aðventu, verður hefðbundið barnastarf í Siglufjarðarkirkju, frá klukkan 11.15 til

Fréttir

Kirkjuskóli og aðventukvöld

Á morgun, 2. desember, fyrsta sunnudag í aðventu, verður hefðbundið barnastarf í Siglufjarðarkirkju, frá klukkan 11.15 til 12.45, og málaðar piparkökur eftir að upp í safnaðarheimili kemur.
Þetta er síðasti kirkjuskólatími á þessu ári.

Klukkan 18.00 hefst svo aðventukvöld, með tónlist, söng og töluðu orði. 

Börn og fullorðnir úr Tónskóla Fjallabyggðar taka þátt, sem og Kirkjukór Siglufjarðar og fermingarbörn vetrarins.

Ræðumaður verður Karl Eskil Pálsson, ritstjóri Vikudags á Akureyri.



Athugasemdir

21.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst