Kiwanis gefur krökkunum hjálma
Í dag þegar krakkarnir gengu út úr skólanum stóðu Kiwanismenn þar færandi hendi með hjálma fyrir yngstu krakkana.
Árlega tekur Kiwanishreyfingin að sér að dreifa hjálmum til yngstu bekkjanna í grunnskólum landsins og lætur Kiwanisklúbburinn Skjöldur sko ekki á sér standa í þessum málum. Að sögn Salmanns, formanns klúbbsins, fá krakkarnir að þessu sinni hjálma sem nota má í flest allt nema hestamennsku.
Þegar Salmann og Guðmundur Skarphéðins höfðu afhent hjálmana fyrir hönd Kiwanis tók Guðbrandur varðstjóri við og minnti krakkana á að hjálmarnir gerðu lítið gagn í kössunum. Á hausnum þyrftu þeir að vera.




Athugasemdir