Kiwanisklúbburinn Skjöldur býður 10. bekk í pizzaveislu
sksiglo.is | Almennt | 13.04.2010 | 11:00 | Sigríður María Róbertsdóttir | Lestrar 398 | Athugasemdir ( )
Í gærkveldi bauð Kiwanisklúbburinn Skjöldur,nemendum 10. bekkjar Grunnskóla Siglufjarðar til pizzuveislu. Þar var þeim afhentur styrkur í ferðasjóð nemenda sem þakklætisvott fyrir góða samvinnu og aðstoð við þrettándagleði Kiwanis.
Klúbburinn vildi koma á framfæri kærri kveðju til 10. Bekkjar.
Megi framtíðin vera björt fyrir ykkur öll
Kiwanisklúbburinn Skjöldur


Athugasemdir