Kjördagur í Fjallabyggð
Ágætis kjörsókn hefur verið á Siglufirði framan af degi en klukkan 14:30 höfðu um 300 manns mætt í kjörklefann í ráðhúsinu. Mest hefur aðsóknin verið eftir klukkan 13:00.
Þrátt fyrir að oft hafi farið meira fyrir sveitastjórnakosningum og aðdragandi þeirra oft verið háværari þá hafa þær nokkuð mikið verið ræddar á götubylgjunni þar sem fólk spáir fyrir um úrslit þeirra.
Komandi bæjarstjórn á mikið verk fyrir höndum í þeirri eiginlegu sameiningu sem mun eiga sér stað á næsta kjörtímabili og því afar mikilvægt að fólkið velji sér þá aðila sem það telur hæfast til að axla þá ábyrgð. Kjörsóknin nú er því mikilvægur þáttur í sameiningarferlinu og eitt stærsta skref þess hvernig sú sameining verður stigin á næstu árum.
Gaman verður að fylgjast með kosningunum í kvöld og forvitnilegt að sjá hvað næstu dagar bera í skauti sér.



Athugasemdir