Kjötsúpufundur á Allanum
Góð þátttaka var á Allanum á Siglufirði þar sem skipulagður hafði verið „kjötsúpufundur“ til að ræða nokkrar þær hátíðir sem í gangi eru í Fjallabyggð. Áherslan var að þessu sinni á Siglufjörð en þátttakendur fundarins voru þó allir á því að það þyrfti að fara að hugsa um bæjarfélögin tvö sem eina heild við skipulagningu í framtíðinni.
Albert, sem er í forsvari fyrir þá aðila sem stóðu að skipulagningu fundarins, Kaupmannafélag Siglufjarðar, Snorri Pálsson framfarafélag og Tunnan prentþjónusta, sá um fundarstjórn og val á fundarefni en fimm hátíðir og uppákomur voru á dagskránni þetta skiptið. Listaganga á aðventu, fjallafjör, 17. júní, siglingakeppnin og síldarævintýrið.
Listagangan gekk vel fyrir sig í fyrra og stefnt er á að hún verði nálægt 10. desember þetta árið. Mariska, sem er í forsvari fyrir listagöngunni, talaði um að það væri gaman að fá karllistamenn til að taka aukinn þátt í listagöngunni þetta árið.
Fjallafjör var mikið til umræðu og voru fundargestir allir á því máli að þó svo að skipulagning þess hafa farið örlítið upp og ofan þetta árið þá væri þarna kominn frábær grunnur til að byggja á. „Skarðsprinsinn“ Egill Rögnvaldsson var valinn til að fara fyrir vinnuhóp um samhæfingu á hátíðinni um næstu páska og gáfu félagar hans í Rauðku það út að hann fengi fullan stuðning frá þeim.
17 júní var nokkuð ræddur og kom þar fram að töluverður niðurskurður hefði orðið á framlögum bæjarins til hátíðarinnar þetta árið eins og til annarra hátíða. Hugmyndir voru uppi um að sameina háðíðirnar á Siglufirði og á Ólafsfirði þannig að staðirnir myndu skiptast á að halda hátíðina, þannig næðist fram viss hagræðing og hægt að gera hátíðina skemmtilegri fyrir vikið með meiri peningum úr að moða.
Mikill hiti var í mönnum þegar tekið var að ræða Siglingakeppnina Midnight Sun Race sem kostaði bæjarfélagið ríflega 8 milljónir króna, en fjárhagsáætlun ársins 2010 gerir ráð fyrir 7 milljónum króna til þessa liðar. Þá kom fram að færa þyrfti hátíðina til og að líklega mundi hún verða sömu helgi og þjóðlagahátíðin á næstu ári. Skiptar skoðanir voru á því hvort hátíðin ætti rétt á sér þar sem fjármögnun hennar kom klárlega niður á fjármögnunum annarra hátíða sem eru þegar orðnar rótgrónar og töluvert ódýrari í framkvæmd. Sumir fundargestir voru á því að þessa hátíð ætti að leggja af strax meðan aðrir töldu að rétt væri að sjá hvað kæmi út úr henni næsta sumar áður en svo afdrifarík ákvörðun væri tekin.
Síldarævintýrið kallaði einnig á miklar og heitar umræður, sérstaklega í ljósi þess að fjármögnun hennar var verulega skorin niður. Seint og illa var staðið að skipulagningu hátíðarinnar að því leitinu að Djassklúbbur Ólafsfjarðar fékk verkefnið seint í hendurnar. Almennt töldu menn þó að Djassklúbburinn hefði komið verkinu vel frá sér miðað við hversu litlu var úr að moða. Talað var um að bæjarbúar væru orðnir þreyttir á því hversu illa hefði verið staðið að hátíðinni síðastliðin tíu ár og það þyrfti að gera róttækar breytingar á því á næsta ári en þá verður 20 ára afmæli hátíðarinnar.
Að þessu loknu tóku starfsmenn Fjallabyggðar að sér að koma upp grundvelli fyrir samskipti hagsmunaaðila í Fjallabyggð. Fundurinn, sem vel var orðinn tímabær, var að öllu leiti góður og fróðlegur og þeir bæjarfulltrúar sem þar voru lærðu án efa mikið um það hvar bæjarbúum finnst að áherslurnar eigi að vera.






Athugasemdir