Knattspyrnuskóli Grétars Rafns
Knattspyrnuskóli Grétars Rafns Steinssonar er nú haldinn í þriðja sinn á Siglufirði, dagana 14-18 júní.
Knattspyrnuskólinn hófst í dag í frábæru veðri og flott vika framundan hjá þátttakendum.
Líkt og undanfarin eru það þjálfarar frá knattspyrnuakademíunni hjá Bolton Wanderers sem sjá um þjálfunina, auk þess sem fleiri góðir gestir koma til með að mæta á svæðið.
Skólinn er fyrir alla þá sem fæddir eru 1992-2001 og eru um 115 krakkar mættir til leiks þetta árið. Iðkendur koma víðsvegar af öllu landinu og augljóst að skólinn trekkir að. Það hefði þó verið gaman að sjá knattspyrnukrakkana úr austurbænum en þaðan kom enginn og söknuður af þeim.
Frábært framtak og það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu, örugglega verðandi landsliðsmenn og konur sem koma til með að eiga góðar minningar um dvöl sína á Siglufirði.




Athugasemdir