Krakkafjör á 17 júní
Það var nóg um að vara hjá yngri kynslóðinni á 17 júní. Víðavangshlaup var um morguninn þar sem þátttaka var frábær en klukkan 14 byrjaði síðan ballið fyrir alvöru á torgi Siglufjarðar.
Hoppukastali var á svæðinu þar sem yngsta fólkið skemmti sér konunglega og trampólín leyndist líka á staðnum þar sem þeir lengra komnir sýndu lystir sýnar. Lengsta röðin var hinsvegar í körfuna hjá slökkviliðinu en þar fengu krakkarnir að fara upp til að sjá bæinn frá nýju sjónarhorni.
Fréttamaður Sigló.is fékk leifi til að fara eina ferð upp með körfunni en erfitt reyndist að ná honum úr henni aftur.
Fleiri myndir má sjá HÉR
Athugasemdir