KS/Leiftur 1 - KV 1

KS/Leiftur 1 - KV 1 Á miðvikudagskvöld mættust KS/Leiftur og KV á Hólsvelli. KS/Leiftur byrjaði leikinn af miklum krafti og sköpuðu sér þó nokkur færi í

Fréttir

KS/Leiftur 1 - KV 1

KS/Leiftur vs KV. Ljósmyndari; Gunnlaugur Stefán Guðleifsson
KS/Leiftur vs KV. Ljósmyndari; Gunnlaugur Stefán Guðleifsson

Á miðvikudagskvöld mættust KS/Leiftur og KV á Hólsvelli. KS/Leiftur byrjaði leikinn af miklum krafti og sköpuðu sér þó nokkur færi í fyrri hálfleik en ekki vildi boltinn inn og þvert á gang leiksins tóku KV menn forustuna með marki beint úr aukaspyrnu rétt í lok fyrri hálfleiks.

 

Í seinni hálfleik mættu okkar menn ákveðnir en ekki vildi boltinn inn og áttu léttleikandi KV menn nokkrar skyndisóknir sem vörnin braut á bak aftur.

Slakur dómari leiksins sleppti því að dæma 2 x vítaspyrnu er KV menn handléku knöttinn innan vítateigs svo greinilega að það sáu allir áhorfendur það á vellinum. Það var svo rétt fyrir leikslok að Bjössi Habbós náði að skalla boltann í netið eftir góðan undirbúning Milan og stuttu eftir það björguðu KV menn á línu eftir að Hörður Már prjónaði sig í gegnum vörn KV.

Leikurinn var góð skemmtun fyrir fjölmarga áhorfendur en því miður átti dómarinn ekki góðan dag en svona er boltinn.

 

 

 


Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst