Kvennahlaup ÍSÍ – Laugardag klukkan 11.00
sksiglo.is | Almennt | 19.06.2009 | 17:00 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 84 | Athugasemdir ( )
Árlegt kvennahlaup ÍSÍ og Sjóvá leggur af stað frá Torginu á Siglufirði klukkan 11 á Laugardagsmorgun.
Er þetta 20 árið sem þetta frábæra framtak fer fram og er því um afmælishlaup að ræða og búist við fjölmenni.
Í ár er þema hlaupsins að „Taka þátt – heilsunnar vegna“ og er ætlað að hvetja til heilbrigðs lífernis og minna konur á að fara í reglulega skoðun til leitarstöðvar krabbameinsfélagsins.
Sigló.is hvetur allar konur til að draga fram hlaupaskónna og fjölmenna í 20 ára afmæli kvennahlaupsins.
Athugasemdir