Kynning á tillögu að Svæðisskipulagi Eyjafjarðar 2012 – 2024
Fimmtudaginn 10. jan. 2013 kl. 20.00 á Ólafsfirði fyrir íbúa Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar.
Fundarstaður: Tjarnarborg.
Nú liggur fyrir tillaga svæðisskipulagsnefndar að svæðisskipulagi fyrir Eyjafjarðarsvæðið sem tekur til sveitarfélaganna sjö við Eyjafjörð þ. e. Fjallabyggðar, Dalvíkurbyggðar, Hörgársveitar, Akureyrarbæjar, Eyjafjarðarsveitar, Svalbarðsstrandarhrepps og Grýtubakkahrepps.
Samkvæmt 2. mgr. 23. gr. laganna skal nefndin kynna tillöguna “fyrir almenningi á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt” áður en hún er tekin til formlegrar afgreiðslu í nefndinni.
Með vísan til þess er boðað til almenns kynningarfundar sem fyrr segir.
Að lokinni kynningu skal nefndin fjalla um og leggja fyrir viðkomandi sveitarstjórnir endanlega svæðisskipulagstillögu. Því næst fær Skipulagsstofnun tillöguna til athugunar. Hafi stofnunin ekki gert athugasemdir við hana innan fjögurra vikna frá því að hún barst henni skal auglýsa hana. Þá gefst öllum þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta tækifæri til að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan sex vikna frests.
Athugasemdir