Kynning á leikmönnum KS/Leifturs

Kynning á leikmönnum KS/Leifturs Leikmannahópurinn í ár hjá KS/Leiftur verður að lang mestu leyti skipaður heimamönnum eins og reyndar undanfarin ár.

Fréttir

Kynning á leikmönnum KS/Leifturs

Halldór Guðmundsson
Halldór Guðmundsson

Leikmannahópurinn í ár hjá KS/Leiftur verður að lang mestu leyti skipaður heimamönnum eins og reyndar undanfarin ár. Væntanlega er ekki til það lið í 2. fyrstu eða úrvalsdeild sem spilar á fleiri heimamönnum en KS/Leiftur og hlýtur það að vera mjög jákvætt fyrir bæjarfélagið okkar. 


Af 25 manna hóp má segja að allir nema 3-4 leikmenn hafa alist upp í Fjallabyggð og eru því uppaldir heimamenn. Næstu daga ætlum við að kynna leikmennina og í dag byrjum við á markmanninum okkar og vinnum okkur svo fram völlinn fram að Íslandsmót, sem hefst næst komandi laugardag.

Halldór Guðmundsson er fæddur 1992 og því á 18. ári. Dóri kom til okkar fyrir síðastatímabil eftir að hafa spilað með 3ja flokki KA, hann sýndi það á síðasta sumri að hann er vel klár í að spila með meistaraflokki og gerði það mjög vel á. Halldór spilaði nær alla leiki á síðasta tímabili. Hann var einnig að banka á dyrnar hjá U19 ára landsliði Íslands nú í vetur. Halldór var kosinn efnilegasti leikmaður KS/Leifturs að lokahófi síðasta tímabils. Halldór hefur tekið miklum framförum undanfarin ár og verður því gaman að fylgjast með honum vaxa og dafna í búningi KS/Leifturs næstu árin.

Skemmtileg staðreind um Dóra: Hann er rauðhærður og er stoltur af því.


Athugasemdir

19.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst