Kynning á varnarmönnum KS/Leifturs
Heiðar Gunnólfsson er fæddur 1979 og hefur spilað allan sinn feril í Fjallabyggð hann á ófáa leiki með Leiftri og svo KS/Leiftri í efstudeild og 1. deild. Hann spilaði lítið síðasta sumar en ákvað í vetur að taka þetta sumar af fullri alvöru og kemur til með að styrkja lið KS/Leifturs mikið í sumar.
Skemmtileg staðreynd um Heidda. Heidda finnst ákaflega skemmtilegt að horfa á sjálfan sig í frítímum í speglinum og virða fyrir sér byssurnar.. Heiðar er líka sjúklega hræddur við randaflugur.
Arnar Geir Ásgeirsson hefur verið að stíga miklum framförum undanfarin ár og spilað stærra og stærra hlutverk í liði KS/Leifturs, Arnar hefur átt við meiðsli að stríða á undirbúningstímabilinu en er vonandi að verða búinn að ná sér af þeim og kemur að fullum krafti inn í Íslandsmótið.
Skemmtileg staðreynd um Arnar: Arnar er að eigin sögn ótrúlega fær í akstri kassabíla.
Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson er fæddur 1978 hann kemur aftur til KS/Leifturs eftir að hafa spilað á síðasta ári með KA. Þorri er gríðarlega mikill liðstyrkur fyrir KS/Leiftur og kemur til með að styrkja varnarleikinn mikið. Þorri hefur átt í töluverðum meiðslavandræðum á undirbúningstímabilinu en vonandi sér fyrir endann á því og vonandi verður Þorri klár í slagginn strax í upphafi.
Skemmtileg staðreynd um Þorra hann er búin að meiðast á 11 mismunandi stöðum á líkamanum og hefur aldrei náð undirbúningstímabili með því liði sem hann hefur spilað.
Hörður Helgason spilaði með KS/Leiftri fyrri hlutan á síðasta sumri áður en hann þurfti að hverfa til náms í Bandaríkjunum. Hann spilaði flesta leiki sem miðvörður en getur einnig leist bakvarðastöðuna af hólmi. Hörður er fæddur 1985.
Skemmtileg staðreynd um Hörð, hann bjó í Bandaríkjunum í vetur og stóð sig ótrúlega vel í náminu, ótrúlegt en satt.
Kristján Vilhjálmsson kemur til liðsins á láni frá Víkingi R. Kristján, sem er 21 árs, þekkir til hjá KS/Leiftri því að hann lék með liðinu síðari hlutann á síðasta tímabili og stóð sig mjög vel. Kristján er líkamlega mjög sterkur.
Skemmtileg staðreynd um Kristján, hann er rauðhærður en er ekki eins stoltur af því og Halldór markmaður.
Aron Ingi Kristinsson er fæddur árið 1989 hann kemur sem lánsmaður frá KR, hann þekkir vel til á Siglufirði enda fæddur þar. Aron Ingi er örfættur og kemur til með að berjast um vinstri vænginn.
Skemmtileg staðreynd um Aron: Hann er að eigin sögn ótrúlega góður í hot yoga og einnig rope yoga. Og er með pinna í báðum geirvörtum.
Eiríkur Magnússon, kemur til KS/Leifturs á láni frá HK. flestir ættu að kannast við kauða enda sonur Magnúsar Eiríks skíðagöngu kappa. Eiríkur getur leyst ýmsar stöður á vellinum en við flokkum hann hér sem varnarmann. Eiríkur er mjög duglegur enda á hann ekki langt að sækja dugnaðinn.
Skemmtileg staðreynd um Eirík: Eiríkur borðaði einu sinni batterí þegar hann var lítill og kúkaði því í heilu lagi.
Ástþór Árnason er fæddur 1993, hann hefur verið að taka miklum framförum á síðasta ári. Hann spilaði ekki mikið í fyrra en þess verður ekki langt að bíða ef hann heldur áfram á sömubraut.
Skemmtileg staðreynd um Ástþór: Ástþór passar sig alltaf að eiga árskort á ljósastofunni á sigló og lætur það aldrei renna út.




Athugasemdir