Leó Óla á logandi strætó

Leó Óla á logandi strætó 15. nóvember skrifaði Leó Óla um þá lífsreynslu að lenda í eldsvoða í strætisvagni. Leó komst óskaddaður út úr bílnum og enginn

Fréttir

Leó Óla á logandi strætó

15. nóvember skrifaði Leó Óla um þá lífsreynslu að lenda í eldsvoða í strætisvagni. Leó komst óskaddaður út úr bílnum og enginn farþegi var í strætónum á þessum tíma sem betur fer. 

 
Annars er best að lesa bara það sem Leó segir sjálfur um þetta og það er hér fyrir neðan.
 
Fengið af heimasíðunni hans Leós og hér er slóðin beint á síðuna : http://leor.123.is/
 

Eftirfarandi frétt birtist á vísi fyrir stuttu síðan.

 

"Eldur kom upp í strætisvagni á leið 28 við Aðalþing í Kópavogi um klukkan 11.40 í morgun. Vagnstjóra sakaði ekki og komst hann heill á húfi út úr vagninum. Enginn farþegi var um borð í bílnum. Eldsupptök eru ókunn og hefur slökkviliðið náð að ráða niðurlögum eldsins. Að sögn Kolbeins Óttarssonar Proppé, upplýsingafulltrúa Strætó bs., er vagninn gjörónýtur". 


Fréttin var nánast samhljóða á vefútgáfu Mbl.

Sjá: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/11/14/kviknadi_i_straeto/

 

Á dv.is var fréttin einnig með líku sniði, en við hana voru nokkrar verulega "fræðandi" og athyglisverð comment. Og þeir sem þau rituðu kunnu allar skýringar á því hver orsökin var og höfðu ótrúlega margt um málið að segja, án þess þó að nokkur ritaranna hafi verið á staðnum eða viti neitt um aðstæður eða aðdraganda. Það var eiginlega ekki annað hægt en að glotta eilítið út í annað yfir öllum þessum "sérfræðiálitum" og öllu bullinu í þeim.


Ótrúlega skammur tími leið frá því að eldurinn gaus upp aftarlega í vagninum, þar til ekki var mögulegt að sjá handa sinna skil fremst við inngöngudyrnar. Sá tími mældist í sekúndum miklu frekar en mínútum og bíllinn var einnig orðinn nánast alelda á svipuðum tíma.


Bílstjóri á rútu frá Teiti Jónassyni sem kom aðvífandi, svo og starfskona úr eldhúsi leikskólans við Aðalþing eiga mikið þakklæti skilið fyrir veitta aðstoð, en þetta er nokkuð sem maður vill komast hjá að þurfa að upplifa aftur þó svo að eldsvoðinn teljist ekki með þeim stærstu og enginn hafi verið í umtalsverðri hættu.


Mynd við frétt kemur frá Guðrúnu.

Athugasemdir

31.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst