Lesið í tölurnar – Ætlar þú á skíði á Sigló um páskana

Lesið í tölurnar – Ætlar þú á skíði á Sigló um páskana Í síðastliðinni viku setti Sigló.is upp könnun með það að markmiði að athuga hversu stór hluti

Fréttir

Lesið í tölurnar – Ætlar þú á skíði á Sigló um páskana

Niðurstöður könnunnar - Ætlar þú á skíði á Sigló um páskana
Niðurstöður könnunnar - Ætlar þú á skíði á Sigló um páskana

Í síðastliðinni viku setti Sigló.is upp könnun með það að markmiði að athuga hversu stór hluti Íslendinga ætlaði að smella sér á skíði á Sigló um páskana. Niðurstaðan var að sjálfsögðu sláandi góð fyrir skarðsprinsinn og aðra þjónustuaðila í Siglufirði.

 

Alls tóku 294 einstaklingar þátt í könnuninni og augljóst er að ef niðurstöður hennar endurspegla alla landsmenn, eins og hún gerir klárlega, munu um 138.000 íslendingar heimsækja Siglufjörð um páskana.

Ekki var það stór hluti landsmanna sem ætlar að haga ferðum sínum eftir veðri, rétt um 8%, eða um 27.000 manns. Eins og allir hinsvegar vita þá er ávalt veðurblíða á siglufirði og má því reikna með því með nokkurri vissu að þessi fjöldi bætist ofan á þá 138.000 íslendinga sem staðráðnir eru í að koma til Siglufjarðar. Samsvarar þetta því um 165.000 manns.

Tölurnar ljúga að sjálfsögðu ekki en ef reiknað er með smávægilegri skekkju gæti þessi tala verið á bilinu 1.000 – 168.000. Greinahöfundur telur þó að neðri talan sé frekar varlega áætluð í þessu samhengi.

Þrátt fyrir glæsilega niðurstöðu fyrir skarðsprinsinn, sértaklega ef hann fær alla þá 165.000 gesti sem hann má búast við í fjallið, þá er helsta niðurstaðan líklega sú að um 46% þjóðarinnar er augljóslega ekki nógu vel upplýst um Siglfirsku Alpana og paradísina Siglufjörð.

 

Rétt er að taka fram að greinahöfundur er ekki tölfræðingur og má því vænta "lítilvægrar" skekkju í útreikningum.


Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst