Lesið í tölurnar – Hvað ætlar þú að kjósa?

Lesið í tölurnar – Hvað ætlar þú að kjósa? Niðurstaða kosningar í Fjallabyggð er í takt við spá helstu manna. Flestir þeirra sem Siglo.is ræddi við í

Fréttir

Lesið í tölurnar – Hvað ætlar þú að kjósa?

Mynd fengin á: www.ruv.is/kosningar
Mynd fengin á: www.ruv.is/kosningar

Niðurstaða kosningar í Fjallabyggð er í takt við spá helstu manna. Flestir þeirra sem Siglo.is ræddi við í aðdraganda kosninganna spáðu þessari niðurstöðu þrátt fyrir að skoðanakönnun síðunnar hafi gefið annað til kynna.

 

Skoðanakönnun Siglo.is gaf til kynna að úrslit yrðu eftirfarandi (að undanskildum auðum seðlum):
B – 4 fulltrúar 46,6%
D – 2 fulltrúar 18,2%
S – 2 fulltrúar 20,5%
T – 1 fulltrúi 14,8%

Í þessu samhengi er vert að benda á það hversu ótrúlega nákvæm skoðanakönnun Siglo.is var hvað varðar niðurstöðu kosningar T-listans sem endaði með 1 fulltrúa og 14,9%.

Smávægileg skekkja var þó tengd hinum flokkunum og gerði það að verkum að annars hárnákvæm skoðanakönnun Siglo.is varð í raun nokkuð langt frá raunverulegri niðurstöðu kosninganna. Nokkrar ástæður geta verið fyrir þessari skekkju en líklegast er þó að tölvukunnátta sé almennt betri hjá kjósendum Framsóknaflokksins en annarra flokka og að þeir séu því líklegri til að kjósa á netinu en aðrir.

Siglo.is mun fylgjast vel með flokkunum næstu daga og þeim þreifingum sem munu eiga sér stað.

 

Vert er að taka fram að greinahöfundur er ekki tölfræðingur.


Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst