Lestur sem kom skemmtilega á óvart
sksiglo.is | Almennt | 20.12.2013 | 14:30 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 514 | Athugasemdir ( )
Það var mikið hlegið þegar Össur las vel valda og stórskemmtilega kafla uppúr bók sinni „Ár drekans“ á Rauðku. Hreif hann greinilega mannskapinn og var ekki betur að sjá en að flestir hefðu keypt áritað eintak af bókinni að lestir loknum.
Af lestrinum að heyra var greinilegt að maður fær innsýn í karlrembulegarn heim stjórnmálanna framsettan á glettinn en jafnframt beinskeyttan máta. Í það minnsta mun höfundur greinarinnar hafa hana á náttborðinu um jólin.
Athugasemdir