Líkan af togaranum Elliða SI-1

Líkan af togaranum Elliða SI-1 Líkan af togaranum Elliða SI-1 var afhent síðastliðinn laugardag. Það voru félagar úr áhöfn skipsins sem færðu FÁUM, Félagi

Fréttir

Líkan af togaranum Elliða SI-1

 Elliði SI-1
Elliði SI-1
Líkan af togaranum Elliða SI-1 var afhent síðastliðinn laugardag. Það voru félagar úr áhöfn skipsins sem færðu FÁUM, Félagi áhugamanna um minjasafn, það til eignar.

Fjöldi fólks var samankomin við athöfnina sem fram fór í Kaffi Rauðku. Kristján Elíasson og Gunnar Trausti fluttu þar ávörp, auk þess sem nýtt lag Lýðs Ægissonar var frumflutt, en lagið heitir "Hafliðamenn". Fyrir hönd FÁUM tók Anita Elefsen við gjöfinni.

Eftirlifandi áhafnarmeðlimir Elliða SI-1 afhjúpuðu líkanið sem hulið var með hvítum dúk þar til það var afhent FÁUM.

Líkanið verður varðveitt í Síldarminjasafninu við hliðina á líkani af togaranum Hafliða SI-2.



Elliði SI-1



Hafliði SI-2

Texti: Anita Elefsen
Myndir: GJS



Athugasemdir

17.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst