Lokun sýsluskrifstofu í Ólafsfirði
Þann 21. október næstkomandi verður sýsluskrifstofunni í Ólafsfirði lokað.
Í ársbyrjun 2007 voru embætti sýslumannsins á Siglufirði og í Ólafsfirði sameinuð í eitt embætti, undir heiti sýslumannsins á Siglufirði. Skrifstofur voru þó áfram bæði á Siglufirði og í Ólafsfirði, enda langt á milli þéttbýliskjarna og erfiðar samgöngur, einkum á vetrum. Með opnun Héðinsfjarðargangna nú í byrjun október hefur orðið gerbreyting á samgöngum milli staðanna.
Á síðustu árum hafa fjárheimildir sýslumannsins á Siglufirði verið skertar verulega. Fyrir liggur að árið 2011 lækka fjárframlög um 10% miðað við fyrra ár og væntanlega verða frekari skerðingar næstu ár. Til að rekstur haldist innan fjárheimilda er ljóst að embættið verður að draga verulega úr umfangi sínu. Koma þá tvær leiðir til greina, annars vegar að segja upp fólki og hins vegar að fækka starfstöðvum.
Mikil hagræðing er að því að hafa alla starfsemi embættisins á einum stað. Rekstrarkostnaður lækkar og unnt er að veita betri þjónustu. Því hefur verið valin sú leið til sparnaðar að loka annarri skrifstofu embættisins en halda óbreyttum starfsmannafjölda. Helstu ástæður þess að valið er að loka í Ólafsfirði fremur en á Siglufirði eru þær að húsnæðið á Siglufirði er sérhannað fyrir starfsemi sýslumanns, en húsnæði í Ólafsfirði er mjög óhentugt, um er að ræða gamalt, stórt einbýlishús, sem ekki nýtist nema að litlu leyti fyrir skrifstofur og er ekki unnt að koma fyrir fleira starfsfólki nema með miklum tilkostnaði.
Síðasti dagur sem sýsluskrifstofan í Ólafsfirði verður opin er 20. október. Þá verður opið til kl. 15:00 og sýslumaður verður til viðtals. Eftir þann dag fá Ólafsfirðingar alla sömu þjónustu á Siglufirði og áður í Ólafsfirði, s.s. vegna þinglýsinga, útgáfu vegabréfa og ökuskírteina og samband við Tryggingastofnun ríkisins. Þjónustan í heild mun í raun batna, þar sem opnunartími er rýmri á Siglufirði en verið hefur í Ólafsfirði og Ólafsfirðingar hafa nú aðgang að sýslumanni alla virka daga vikunnar. Áfram verður svarað í sama símanúmer, 460 3900 og er símatími frá kl. 8:00 til kl. 15:30 frá mánudegi til föstudags. Opnunartími er frá kl. 9:00 til kl. 15:00 sömu daga.
Embættið þakkar Ólafsfirðingum góð samskipti á liðnum árum og vonar að þau megi aukast og batna á nýjum stað.
6. október 2010
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Ásdís Ármannsdóttir




Athugasemdir