Malbikun Héðinsfjarðarganga

Malbikun Héðinsfjarðarganga Malbikun er nú hafin í Héðinsfjarðar-göngum. Jóhann Gunnar Stefánsson framkvæmdastjóri Háfells segir að verkinu miði vel og

Fréttir

Malbikun Héðinsfjarðarganga

Malbikun er nú hafin í Héðinsfjarðar-
göngum. Jóhann Gunnar Stefánsson framkvæmdastjóri Háfells
segir að verkinu miði vel og allt útlit fyrir að verkáætlanir standist.

Það er malbikunarstöðin Hlaðbær Colas sem er undirverktaki Háfells sem sér um
malbikun í göngunum.

Í þessum fyrst áfanga var malbikunarstöð sett upp við höfnina á Siglufirði og verður malbikað frá Siglufirði og inn í Héðinsfjörð.

Það er búið að malbika u.þ.b. helming ganganna Siglufjarðarmegin og áætlað að malbikun yfir í Héðinsfjörð klárist á föstudag.

Í seinni áfanganum verður malbikunarstöð sett upp á Ólafsfirði og þaðan malbikað Ólafsfjarðargögn til Héðinsfjarðar.


Þar af leiðandi er öll umferð um göngin lokuð og vinnusvæðið sjálft er lokað öllum óviðkomandi.



Jóhann Gunnar Stefánsson framkvæmdastjóri Háfells





Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst