Marinering síldar
sksiglo.is | Almennt | 18.02.2010 | 10:46 | Síldarminjasafnið | Lestrar 357 | Athugasemdir ( )
Sýnikennsla í marineringu á krydd- og sykursaltaðri síld, fer fram í Bátahúsinu fimmtudagskvöldið 18. febrúar kl. 20:30. Kristrún Halldórsdóttir sýnir réttu handtökin og gefur uppskriftir og góð ráð. Þessi sýnikennsla er í beinu framhaldi af söltuninni hér á
Roaldsplaninu í október.
Síldin virðist hafa verkast mjög vel og er hin girnilegasta. Söltunin og sýnikennsla er tilraun Síldarminjasafnsins til að viðhalda gömlum matarhefðum okkar
Siglfirðinga. Allir velkomnir!
Þeir sem eiga síldarfötur síðan í haust geta komið í Bátahúsið og sótt þær við hentugleika.

Athugasemdir