Meðmælafundur á Austurvelli fimmtudaginn 11. nóv. kl. 16.00

Meðmælafundur á Austurvelli fimmtudaginn 11. nóv. kl. 16.00 Á dag, fimmtudag 11. nóvember kl. 16.00, munu hollvinir heilbrigðisþjónustunnar á landinu

Fréttir

Meðmælafundur á Austurvelli fimmtudaginn 11. nóv. kl. 16.00

Á borgarafundinum á Allanum. Ljósmyndari; BM
Á borgarafundinum á Allanum. Ljósmyndari; BM

Á dag, fimmtudag 11. nóvember kl. 16.00, munu hollvinir heilbrigðisþjónustunnar á landinu öllu sameinast um friðsamlegan meðmælafund á Austurvelli. Hollvinir Heilbrigðisstofnanna á Suðurlandi fóru af stað með undirskriftasöfnun til stuðnings heilbrigðisþjónustunni á Suðurlandi og munu stýra fundinum.

 

Hollvinir annarra heilbrigðisstofnana og heilbrigðisþjónustunnar í heild sinni ákváðu að slást í för með sunnlendingum. Á fundinum munu fulltrúar hollvina heilbrigðisstofnana um allt land afhenda heilbrigðisráðherra undirskriftarlista til stuðnings heilbrigðisþjónustunni.

Ákveðið hefur verið að boða sem flesta stuðningsmenn heilbrigðisþjónustunnar á Austurvöll af þessu tilefni til að sýna samstöðu.  Þó skal tekið fram að ekki er verið að boða til mótmæla, heldur miklu frekar til meðmæla þar sem við sýnum að okkur er annt um þá heilbrigðisþjónustu sem byggð hefur verið upp um allt land á undanförnum áratugum.

Meðmælafundurinn er haldinn til þess að vekja máls á mikilvægi heilbrigðisþjónustunnar í heild sinni, þar með talið heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, heilbrigðisstofnana landsbyggðarinnar og hátæknisjúkrahúsa. Markmiðið er að sýna styrk í samstöðu landsmanna með meðmælum með heilbrigðisþjónustunni.

Víða um landið er verið að veita góða, hagkvæma og örugga þjónustu. Þannig viljum við hafa það áfram. Stöndum vörð um heilbrigðisþjónustuna og hvetjum ráðamenn til að tryggja viðeigandi fjárframlög til heilbrigðismála sem tekur mið af raunverulegri þörf skjólstæðingana. Hvetjum alla sem láta sér annt um heilbrigðisþjónustu landsmanna að mæta og stöndum þétt saman um jafnan rétt til heilbrigðisþjónustu í nærumhverfi sínu, jafnt höfuðborgarbúar sem landsbyggðarfólk.


Athugasemdir

18.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst