Meirihlutaviðræður Framsóknar og Samfylkingar slitna
Framsókn og Samfylking hafa nú átt í formlegum meirihlutaviðræðum frá því í síðustu viku en þreifingar hófust strax eftir kosningar. Samkvæmt heimildum Siglo.is lágu málefnasamningar fyrir en krafa Framsóknarmanna um óháðan bæjarstjóra náði hinsvegar ekki fram að ganga. Slitnaði því uppúr viðræðum.
Þar sem engin stór mál aðskildu stefnu flokkanna voru menn í síðustu viku vongóðir um að samningar næðust. Kom það því á óvart að krafa um bæjarstjóra kæmi upp á síðustu metrunum, sérstaklega í ljósi þess að engar kröfur höfðu verið um bæjarstjóra í upphafi viðræðna segir Ingvar Erlingsson, oddviti Framsóknar. Forsendur meirihlutasamstarfs Framsóknar og Samfylkingar voru því brostnar.
Í hádegisfréttum RÚV kom fram að Samfylking hafi nú leitað eftir meirihlutaviðræðum við Sjálfstæðisflokkinn en að ekki hafi verið einhugur um það innan Samfylkingar.
Enn hefur ekki verið formlega gefið út hver innan raða Samfylkingarinnar felst eftir bæjarstjórastólnum en forvitnilegt verður að fylgjast með framgangi mála á næstu dögum.




Athugasemdir