Meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks tekur við af sjálfum sér

Meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks tekur við af sjálfum sér Eins og flestum er orðið kunnugt er búið að lenda áframhaldandi meirihluta Framsóknar

Fréttir

Meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks tekur við af sjálfum sér

Eins og flestum er orðið kunnugt er búið að lenda áframhaldandi meirihluta Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. Algjörar mannabreytingar eru þó innan listanna tveggja og bæjarstjórn verður því mönnuð algerlega af nýju fólki.

Atburðarásin eftir kosningar hefur verið frekar skrautleg og fyrirætlanir Samfylkingar um „Sameiningu í Sátt“ fauk út um gluggann sökum ótrúlegrar kröfu sem skaut upp kollinum innan samfylkingar á lokametrunum í viðræðum þeirra við Framsóknarflokkinn. Eins og Siglo.is hefur fjallað um höfðu flokkarnir á þessu stigi máls þegar landað málefnasamningum og kom krafan því eins og þruma úr heiðskýru lofti fyrir Framsóknarmenn og marga aðila innan Samfylkingar.

Í framhaldinu tókust upp viðræður hjá Samfylkingu og Sjálfstæðisflokk sem lauk hratt þar sem engin samstaða náðist um skiptingu embætta milli flokkanna.

Uppúr þessu snéru bæði Samfylking og Sjálfstæðisflokkur sér til Framsóknarflokksins í von um samstarf á komandi kjörtímabili og í kjölfarið náðu Framsókn og Sjálfstæðisflokkur saman.

Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst