Vegleg gjöf til Mæðrastyrksnefndar Akureyrar
Jóna Berta þakkaði fyrir og sagði að þetta kæmi að góðum notum Hún sagði einnig að þeir sem þurfa á aðstoð að halda þyrftu að koma í húsnæði Mæðrastyrksnefndar dagana 8. til 10. desember nk. milli kl. 13 og 17 og skrá sig.
Þeir sem ekki geta mætt á svæðið geta hringt í síma 868 3143 eða 460 4617 á sama tíma. Afhending fer svo fram dagana 16. til 19. desember í Íþróttahöllinni á Akureyri þar sem Mæðrastyrksnefnd er til húsa. Gengið inn að vestan frá Þórunnarstræti. Það er alltaf opið á þriðjudögum frá kl. 13:00 til 18:00 og þá daga sem úthlutun fer fram verður opið á sama tíma.
Rétt er að vekja athygli á því að Mæðrastyrksnefnd Akureyrar aðstoðar fólk um
allan Eyjafjörð, frá Siglufirði að Grenivík, og starfar allan ársins hring þótt
mestu annirnar séu nú eins og jafnan áður í kringum jólahátíðina. “Allar
ábendingar eru vel þegnar ef fólk veit um einhvern sem þarf aðstoð en af
einhverjum ástæðum getur ekki óskað eftir henni,” segir Jóna Berta. Einnig er
hægt að hafa samband við skrifstofur stéttarfélaga með slíkar ábendingar og
verður þeim þá komið áfram til Mæðrastyrksnefndar.
Félögin sjö sem færðu nefndinni styrk eru Eining-Iðja, Fagfélagið, Félag
málmiðnaðarmanna Akureyri, Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og
nágrennis, Sjómannafélag Eyjafjarðar, Sjómannafélag Ólafsfjarðar og
Verkstjórafélag Akureyrar og nágrennis.
Ef einhverjir fleiri vilja leggja nefndinni lið þá er hægt að leggja inn
á reikning Mæðrastyrksnefndar í Arion banka. Reikningsnúmerið er 0302-13-175063
og kennitalan er 460577-0209. Munið, margt smátt gerir eitt stórt.
Á myndinni eru Jóna Berta
Jónsdóttir og Björg Hansen, fulltrúar Mæðrastyrksnefndar, ásamt nokkrum fulltrúum
félaganna sjö sem færðu nefndinni gjöfina. Talið frá vinstri. Björg Hansen,
Björn Snæbjörnsson, Hákon Hákonarson, Jóna Berta Jónsdóttir, Konráð Alfreðsson,
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir og Heimir Kristinsson.
Fréttatilkynning frá Einingu-Iðju, Fagfélaginu, Félagi málmiðnaðarmanna Akureyri, Félagi verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni, Sjómannafélagi Eyjafjarðar, Sjómannafélag Ólafsfjarðar og Verkstjórafélagi Akureyrar og nágrenni mánudaginn 28. nóvember 2011.
Athugasemdir