Myndlistarsýning leikskólabarna
sksiglo.is | Almennt | 10.11.2013 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 296 | Athugasemdir ( )
Myndlistarsýning leikskólabarna var haldin í Ráðhúsinu á Siglufirði laugardaginn 9. nóvember.
Margir komu og skoðuðu listaverkin sem unga listafólkið var með til sýnis og sölu. Listaverkin voru hvert öðru fallegra og virkilega gaman að
skoða. Ég held að hámarks árangri hafi verið náð í listaverkasölu og líklega hafa öll verkin selst.
Margir úr hópi unga listafólksins sýndi því ögn meiri áhuga að hlaupa um sýningarsalinn og ganga ráðhússins en að spjalla um verk sín og ræða listræn form og meiningar, þannig að á tímabili var þetta svona eiginlega listaverkasýning og hlaupa-gjörningur í eins náttúrlegu listformi og hægt er að hugsa sér.
Þeir sem komu svo og skoðuðu listaverkin og hlaupa-gjörninginn náðu að skoða listaverkin í cirka eins mínútna lotum á milli hlaupa-gjörnings sem var reglulega skellt á fyrirvaralaust.
Annar hámarks árangur náðist einnig, en það var í veitingasölu. Veitingarnar voru ekki af verri endanum og það var hreinlega slegist um
góðgætið.
Það er aldeilis efnilegt unga listafólkið sem við eigum í Fjallabyggð.
Svo eru myndir af þessu öllu saman hér fyrir neðan.







Athugasemdir