Handverk á Tröllaskaga –opin smiðja.

Handverk á Tröllaskaga –opin smiðja. SÍMEY býður upp á námskeið í handverkssmiðju í Dalvíkur- og Fjallabyggð,  námskeiðið er s.k. Opin smiðja sem er

Fréttir

Handverk á Tröllaskaga –opin smiðja.

Tannstönglabox úr kýrlegg
Tannstönglabox úr kýrlegg

SÍMEY býður upp á námskeið í handverkssmiðju í Dalvíkur- og Fjallabyggð,  námskeiðið er s.k. Opin smiðja sem er þróunarverkefni á vegum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

Í smiðju er lögð áhersla á nám til að skipuleggja, undirbúa, vinna og skila verki sem er starf eða hluti starfs á vinnumarkaði. Undir Opnar smiðjur falla síðan nánari útfærslur á sértækum smiðjum, allt eftir viðfangsefni.

Námskeiðinu er ætlað að ná til þeirra sem eru að vinna að hverskonar handverki, má þar nefna vinna með tré, horn og bein, plöntur eða hvað eina. Hugmyndin er að auka samræðu og jafnvel samvinnu á milli handverksfólks á Tröllaskaga þar sem m.a. menningararfurinn er nýttur í sköpun handverks og hugsanlegt samstarfs í sölu, markaðssetningu eða framleiðslu á vöru.

Eftirfarandi eru nokkrir þættir sem tekið verður fyrir á námskeiðinu:

• Hvernig á að hugsa handverk?

• Hvernig nýti ég náttúruna í handverksvinnu og ferðaþjónustu?

• Sérstaða sveitarfélaganna.

• Markaðssetning á vörum.

• Kynning á handverki.

• Vöruþróun

• Aukið samstarf og samræða aðila á svæðinu sem sinna handverki og ferðaþjónustu.

Námskeiðið er byggt upp á fyrirlestrarformi, verklegri vinnu, vettvangsheimsóknum auk þessa þurfa þátttakendur að halda verkdagbók á meðan námskeiði stendur.

Námskeiðið er 80 klst. kennt seinniparta og um helgar.

Námskeið hefst ef næg þátttaka fæst.

Skráning fer fram á www.simey.is eða í síma 460-5720

Texti: Aðsendur

Myndin er fengin að láni frá    www.litlubudirnar.is



Athugasemdir

23.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst