Nefnd skipuð um Síldarævintýrið 2010, 20 ára afmæli þess
Góð mæting var í Ráðhús Siglufjarðar í gærkvöld þar sem síldarævintýrið var rætt til hins ýtrasta. Í lok fundar hafði verið skipuð nefnd sem mun leggja drög að 20 ára afmæli síldarævintýrisins á Siglufirði fyrir næstkomandi páska.
Á fundinum sátu margir þeirra aðila sem hafa hagsmuna að gæta á Siglufirði þessa stærstu ferðahelgi ársins, enda ekki öðru að vænta þegar framtíð Síldarævintýrisins er í veði. Á fundinum mátti glögglega sjá að fólk var orðið þreytt á því hversu illa hefur verið staðið að Síldarævintýrinu undanfarin ár og hversu seint skipulagning þess hefur farið af stað. Allir sammæltust um að þörf væri á róttækum breytingum til að endurvekja Síldarævintýrið og draga fram upprunalegan sjarma þess. Hátíðin er sú eina sinnar tegundar á Íslandi sem byggir á sögu og menningu staðarins og að því þarf nú aftur að huga.
Þegar fundargestir höfðu lýst yfir áhyggjum sínum af því litla fjármagni sem hátíðin fengi vegna annarra kostnaðarfrekra liða sem skiluðu litlu sem engu inn í bæjarfélagið snéru þeir sér að merg málsins. Síldarævintýrið mætti ekki leggja niður en það þyrfti að skipuleggja og framkvæma hátíðina almennilega til að auka áhuga og jákvæðni bæjarbúa í garð hennar. Menn voru á þeim nótum að þrátt fyrir lítil fjárframlög til hátíðarinnar mætti mun betur gera með góðri skipulagningu og öflugum vinnuhóp.
Í lok fundar höfðu mætir menn tekið að sér að sitja í nefnd um skipulagningu Síldarævintýrisins 2010 og voru það þeir Stulli, Örlygur, Tóti og Hilmar Elefsen. Er þetta rétt skref í átt að flottu 20 ára afmæli Síldarævintýrisins sem stefnir á að verða hið glæsilegasta ef marka má þá umræðu sem fram fór á fundinum.
Tökum nú saman höndum og gerum 20 ára afmæli Síldarævintýrisins á Siglufirði að ævintýri sem bæjarbúar geta verið stoltir þátttakendur í.



Athugasemdir