Norðurljósin yfir Skarðinu
sksiglo.is | Almennt | 19.02.2014 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 683 | Athugasemdir ( )
Á mánudagskveld fórum við 3 félagarnir upp í Skarðsdal til
þess að freista þess að sjá norðurljósin og jafnvel til þess að ná nokkrum myndum af þeim.
Norðurljósin hafa sýnt sínar beztu hliðar síðustu 2 kvöld og
maður hreinlega gleymir sér algjörlega í þessum svokölluðu norðurljósamyndatökum.
Það var blíðuveður, ísjökulkalt og logn. Alveg heiðskýrt
og ótrúlega fallegt.
Með mér í þessari norðurljósasvaðilför voru þeir
Gunnlaugur Guðleifsson og Fróði Brinks.
Hér eru nokkrar myndir sem ég tók , þó svo að þær
jafnist nú líklega ekkert á við þær myndir sem þeir Canon-kallarnir tóku þegar þeir dúlluðu sér saman með Canon
vélarnar sínar þarna aðeins fyrir neðan Nikon-in.
En allavega fyrir ykkur sem hafið áhuga á norðurljósum þá eru
hér nokkrar myndir.
Þessi mynd er tekin efst upp á Bungunni fyrir ofan Skíðasvæðið í Skarðsdal. Horft
í austur.
Þessi er líka uppi á bungunni. Mynd líklega tekin í norður.
Hér sjást þeir félagar Gulli Stebbi og Fróði Brinks. Fróði stendur nær okkur og
Gulli fjær.
Þessi mynd er líka tekin upp á Bungunni.
Þessi mynd er tekin efst í sjálfu Skarðinu. Hér sést Bungulyftan og hluti af
skíðasvæðinu.
Fljótamegin efst í Skarðinu.
Siglufjarðarskarð.
Raflínumastur í Siglufjarðarskarði.
Fljótamegin í Siglufjarðarskarði.
Þessi mynd er tekin Siglufjarðarmegin í Skarðinu. 
Mynd tekin efst í T-lyftu.
Mynd tekin efst í T-lyftu í skíðasvæðinu í Skarðsdal.
Horft í átt að skíðasvæðinu í Skarðsdal.
Siglufjörður. Mynd tekin í hlíð Hólshyrnunnar.



Athugasemdir