Nýjustu fréttir af Skólahreysti
sksiglo.is | Almennt | 08.03.2010 | 11:59 | Sigríður María Róbertsdóttir | Lestrar 689 | Athugasemdir ( )
Í gær 04. mars fór fram fjórði riðill af tíu í Skólahreysti MS 2010. Farið var með skólahreystigáminn á Egilsstaði og brautin sett upp í Íþróttahúsinu Tjarnarbraut á Egilsstöðum.
Íþróttahúsið fylltist af fjörugum stuðningsmönnum sem héldu uppi mikilli stemningu allt mótið og spenna og gleði skein úr hverju andliti. Það er Jónsi sem sér áfram um að halda uppi gleði og fjöri í íþróttahúsunum og nær hann að kalla fram það allra besta í hverjum og einum, hvort sem það eru keppendur eða stuðningsmenn.
Ellefu skólar tóku þátt á Austurlandi og voru þeir eftirtaldir: Gr.Breiðdalshrepps, Fellaskóli, Gr.Reyðarfjarðar, Gr.Djúpavogs, Gr.Fáskrúðsfjarðar, Egilsstaðaskóli, Nesskóli, Gr. Á Stöðvarfirði, Gr.á Eskifirði, Gr.Hornafjarðar og Vopnafjarðarskóli.
Það varð lið Egilsstaða sem sigraði keppnina með 59 stigum. Í öðru sæti varð Vopnafjarðarskóli með 49 stig og Gr.Breiðdalshrepps í þriðja með 44,5 stig.
Það eru því fjórir eftirtaldir skólar sem komnir eru í úrslit: Gr.á Hellu, Ölduselsskóli, Austurbæjarskóli og Egilsstaðaskóli.
Tólf skólar munu keppa til úrslita. Það verða tíu riðlar og stigahæsti skólinn í hverjum riðli kemst í úrslit. Einnig verða teknir tveir skólar til viðbótar og eru það þeir skólar sem bestan árangur hafa en náðu ekki fyrsta sæti.
Þáttaröð af Skólahreysti MS verður svo á fimmtudögum í apríl og verður fyrsti þáttur af fjórum sýndur 01.apríl kl.20:10. Þáttaröðin endar svo með beinni útsendingu af úrslitum 29.apríl frá Laugardalshöll.
Næstu tveir riðlar verða á Akureyri næsta, fimmtudag 11.mars. Sá fyrri eru skólar af Norðurlandi og hefst hann kl.15:00 og sá síðari er kl.18:00 og eru það skólar frá Akureyri.
Allar nánari upplýsingar eru að finna á Skolahreysti.is

Athugasemdir