Nýr slökkvibíll á Siglufirði
sksiglo.is | Almennt | 29.04.2009 | 15:59 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 543 | Athugasemdir ( )
Í gærkvöldi kom nýr slökkvibíll til Siglufjarðar og voru slökkviliðsmennirnir fullir áhuga þegar Ámundi rann með gripinn í bæinn. Slökkviliðsstjórinn mun síðan renna með bílinn á Ólafsfjörð eftir hádegi en þar mun hann vera í einhverjar vikur þar sem klárað verður að standsetja hann til vinnu.
Þrátt fyrir að bíllinn sé allur hinn glæsilegasti vonaðist Ámundi þó til að þurfa aldrei að nota hann.
Athugasemdir