Nýr slökkvibíll vígður á Siglufirði
sksiglo.is | Almennt | 07.06.2010 | 00:38 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 562 | Athugasemdir ( )
Slökkvibíllinn nýi sem kom til Siglufjarðar á síðasta ári og fór í breytingu til Ólafsfjarðar er nú kominn aftur á Sigló. Á laugardaginn var boðað til veislu í slökkvistöðinni þar sem bíllinn var til sýnis.
Fjöldi manns mætti til að samgleðjast slökkviliðinu þar sem pylsum var smellt á grillið og yngri kynslóðin fékk að leika sér í slökkvistöðinni meðan sú eldri fékk kaldan með pylsunni.






Athugasemdir