Óli Þór og Halli Þór eru báðir komnir á aldur
sksiglo.is | Almennt | 04.06.2014 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 607 | Athugasemdir ( )
Ég fékk að smella nokkrum myndum af þessum öðlingum sem eru
báðir orðnir 67 ára og því báðir löglega komnir á aldur.
Þeir hafa reynst hvor öðrum vel segir Óli þeir hafa ýmislegt
brallað saman í gegn um árin.
Bíllinn er Jeep Willys árgerð 1947 og var í eigu föður Óla, Halla
Þór. Óli fékk bílinn svo árið 1978 og hafa þeir verið miklir vinir síðan.
Glæsilegir báðir tveir og eiga mörg ár eftir.







Athugasemdir