Píparar, rafvirkjar og gröfumaður
sksiglo.is | Almennt | 24.02.2014 | 15:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 606 | Athugasemdir ( )
Ég kom við á framkvæmdasvæði Hótels Sunnu um síðustu helgi.
Á pylsurúntinum sem ég tek svona frekar oft um helgar og þá jafnvel
fljótlega eftir matinn hjá henni Ólöfu minni sá ég að þeir voru að vinna í grunninum pípararnir og rafvirkjarnir.
Að sjálfsögðu þurfti ég nauðsynlega að ræða aðeins
við þá og hugsanlega hjálpa þeim eitthvað. Ég sagði Agnari aðeins til og þeir dáðust að þekkingu minni þeir
Grétar og Eyjó píparar og Marteinn rafvirki og Lúlli á gröfunni.
En þarna voru þeir semsagt drengirnir að vinna við rafmagn og pípulagnir og
að sjálfsögðu var þetta allt saman glæsilega gert.
Grétar Sveinsson hress og kátur í kuldanum.
Marteinn rafvirki á fullu.
Eyjólfur Bragi pósar fyrir myndavélina. Vafalaust velta margir því fyrir sér þegar þeir sjá þessa mynd, hvort Eyjólfur
hafi unnið við módelstörf áður. Svarið er já.
Rafvirkjarnir Marteinn og Agnar að störfum.
Lúlli í gröfunni og Agnar Sveinsson.
Hér gat ég bara ekki setið á mér. Ég bara varð að segja honum Agga aðeins til.
Agnar Sveinsson að störfum.
Lúðvík Sverrisson er virkilega fær á gröfum og allavega tækjum.
Grétar Sveins að pípa.
Hér eru þeir svo að fara að breiða segl yfir efnið í grunninum.



Athugasemdir