Ræs síld! Síldarsöltun - ódýr og hollur matur á krepputímum.
sksiglo.is | Almennt | 13.10.2009 | 12:27 | Síldarminjasafnið | Lestrar 484 | Athugasemdir ( )
Fólki býðst að salta síld á Róaldsplaninu í dag, þriðjudag kl 17-18.
Allt tilbúið á staðnum: Fersk og nýveidd síld að austan, krydd- og sykursöltunarblöndur. Koma má með eigin ílát en einnig verða til reiðu 10 ltr. fötur
Síldarstúlkur af planinu okkar aðstoða við söltunina. Kaffi og meðví.
Áætlaður kostnaður fyrir 10 kg. af saltaðri síld er 1000.- kr. - með fötu 1400 kr. (allt selt á innkaupsverði)
Síldarminjasafnið



Athugasemdir