Rammi hf ræsir rækjuverksmiðjuna
sksiglo.is | Almennt | 24.04.2009 | 13:13 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 584 | Athugasemdir ( )
Ekki hefur það farið fram hjá Siglfirðingum að Rammi hefur unnið að standsetningu nýrrar rækjuverksmiðju í heimkynnum sínum á Siglufirði en í morgun klukkan 8.00 var komið að ræsingu hennar. Verksmiðjan, sem er öll hin glæsilegasta, var hönnuð af starfsmönnum Ramma hf. og að uppbyggingu hennar unnu, auk starfsmanna fyrirtækisins., allflest iðn- og þjónustufyrirtæki á Siglufirði.
Samkvæmt Ólafi Marteinssyni, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, er áætlað að verksmiðjan vinni um 15 tonn af hráefni á dag og að um 12 manns vinni að jafnaði í verksmiðjunni. Þá er stefnt á að vinna sem mest úr rækju sem veidd er við Ísland en þó má reikna með að einhver hluti hráefnis verði af erlendum uppruna. Múlaberg SI hefur þegar farið á veiðar og er reiknað með að það komi í land næstkomandi þriðjudag. Þá er stefnt að því að Siglunes SI fari á veiðar í næstu viku.
Athugasemdir