Rebel Klippibúlla opnar

Rebel Klippibúlla opnar Sjaldan hefur verið jafn mikil eftirvænting eftir opnun klippistofu og þegar Rebel Klippibúlla opnaði dyr sínar að Nýbýlavegi

Fréttir

Rebel Klippibúlla opnar

Ólöf, Hrólfur og Emma Hrólfdís
Ólöf, Hrólfur og Emma Hrólfdís

Sjaldan hefur verið jafn mikil eftirvænting eftir opnun klippistofu og þegar Rebel Klippibúlla opnaði dyr sínar að Nýbýlavegi 18, við hliðina á American Style og Toyota, í fyrsta skipti á föstudaginn síðastliðinn

 

Hópur manna hafði safnast saman og beðið utan við klippibúlluna allt frá því kvöldið áður með von um að vera fyrstir til að ná sér í klippingu hjá mótorhjólatöffaranum Hrólfi.

Hrólfur segir engu líkara en hann hafi verið að opna nýja raftækjaverslun með dúndurtilboðum, en engu mátti muna að hann hefði verið troðinn niður af trylltum hópnum þegar dyr Rebel opnuðu. „Mönnum þyrstir greinilega orðið í góða klippingu segir meistarinn“.
Emma Hrólfdís, dóttir Hrólfs og Ólafar, varð þó að sjálfsögðu fyrst í stólinn hjá Hrólfi og var það í boði afa Balda sem heimtaði að fá að greiða fyrstu klippinguna. Hinir klippiþyrstu kúnnar sem beðið höfðu í röðum fyrir utan fylgdu síðan í kjölfarið með Magnús Jónsson í fararbroddi.
Það er ekki að ástæðulausu að menn hafa beðið með eftirvæntingu eftir opnun Rebel enda er það líklega eina klippistofa landsins þar sem menn geta spilað pool meðan þeir bíða eftir klippingu en það er einmitt eitt af því sem einkennir klippibúlluna Rebel.

 

 

Fleiri myndir frá opnuninni má sjá HÉR

 

 


Athugasemdir

21.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst