sksiglo.is | Almennt | 21.05.2013 | 16:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 293 |
Athugasemdir ()
Samtök meðlagsgreiðenda (SMG) vilja koma eftirfarandi á framfæri.
Frá stofnun samtakanna hefur stjórn talið Þjóðskrá brjóta
jafnréttislög þegar hún synjaði beiðni formanns samtakanna um að hann yrði skráður sem foreldri í þjóðskrá.
Samtökin telja það ekki samræmast jafnréttislögum að mismuna foreldrum á grundvelli kynferðis við almannaskráningu. Þessi
mismunun hefur valdið því að þjóðfélagshópurinn er ósýnilegur og órannsakanlegur með þeim afleiðingum t.d.
að ekki er hægt að kanna hlutfall hans á vanskilaskrá. Samtökin telja það ófært að löggjafinn sé að semja
sérlög (Lög um Innheimtustofnun sveitafélaga) um c.a. 14,000 manna þjóðfélgshóp sem er íþyngjandi fyrir
þjóðfélagshópinn, án þess að vita hverjir falla undir lögin, hve margir þeirra eru á vanskilaskrá og að upplýsingar
séu almennt til um félagslega og fjárhagslega hagi hans. Lög um Innheimtustofnun eru sérlög og ganga því öðrum lögum framar,
t.d. stjórnsýslulögum, að sögn lögmanna Innheimtustofnunar (sbr. meginreglu laga lex specialis). Því telur stofnunin sig ekki þurfa að
hlíta stjórnsýslulögum og meginreglum þeirra í viðskiptum við meðlagsgreiðendur. Samtökin telja ömurlegt að löggjafinn
hafi gefið opinberri stofnun þvílíkt vald yfir þjóðfélagshópi sem hann veit nánast ekkert um og að slíkt samræmist ekki
kröfum nútímalegs lýðræðis- og réttarríkis.
Undirritaður formaður Samtaka meðlagsgreiðenda fór formlega fram á
það við Þjóðskrá að hún skráði hann sem foreldra í þjóðskrá en ekki sem barnslausan einstakling.
Þjóðskrá synjaði beiðni Gunnars og til að samtökin öðluðust aðild að málinu kærðu þau synjunina fyrir
hönd Gunnars til kærunefndar jafnréttismála og Jafnréttisstofu. Jafnréttisstofa tók málið að sér og sendi samtökunum
svar þar sem segir m.a.:
"Jafnréttisstofa
hefur skrifað þjóðskrá bréf þar sem Jafnréttisstofa telur að það geti verið um óbeina mismunun á grundvelli kyns að
ræða þegar umgengnisforeldrar, sem flestir eru feður, eru ekki skráðir í þjóðskrá þannig að hægt sé að
fá upplýsingar um þann hóp. Í bréfinu óskar Jafnréttisstofa upplýsinga um það hvenær gera megi ráð fyrir
því að þær breytingar sem fyrirheit eru gefin um í bréfi til þín frá 5. okt. 2012 geti orðið að veruleika.
Jafnréttisstofa hefur jafnframt skrifað innanríkisráðuneytinu bréf með ábendingum um að endurskoða lagaumhverfi
þjóðskrár hið fyrsta ásamt því að tryggja þjóðskrá fjármagn til að koma tæknimálum þar
í það horf að hægt sé að skrá þessar upplýsingar.
Samtökum
meðlagsgreiðenda til upplýsingar þá er rétt að benda á að í skýrslu starfshóps um karla og jafnrétti er gerð tillaga
að því að ráðast í rannsókn á kjörum meðlagsgreiðenda, sjá skýrsluna hér: http://www.velferdarraduneyti.is/media/Rit_2013/karlar_og_jafnretti_skyrsla_m_tillogum_18ap2013.pdf"
Það hér
með tilkynnist að Jafnréttisstofa telur mögulegt að það samræmist ekki jafnréttislögum að skrá ekki umgengnisforeldra sem foreldra
í Þjóðskrá. Að auki hefur Jafnréttisstofa send innanríkisráðherra ábendingu að veita þjóðskrá
fjármagn og breyta lögum í þá veru að þjóðskrá geti skráð umgengnisforeldra sem foreldra í
þjóðskrá.
Samtök
meðlagsgreiðenda vilja koma fram þökkum til Jafnréttisstofu og óskum um að stjórnvöld vinni nú hratt í málinu þannig að
Þjóðskrá geti hafist handa sem allra fyrst að bæta almannaskráningu með þeim hætti að umgengnisforeldrar verði skráðir sem
foreldrar í þjóðskrá og verði þar með rannsóknarhæfur þjóðfélagshópur.
F.h. stjórnar.
Gunnar Kristinn
Þórðarson, stjórnarformaður SMG
S. 8521080
Athugasemdir